24.10.2011 22:20
Fjáröflunardagur Kvennadeildar Barðstrendingafélagsins
Kvennadeild Barðstrendingafélagsins verður með sinn árlega fjáröflunardag laugardaginn 29. október í sal Breiðfirðingafélagsins að Faxafeni 14.
Húsið opnar kl. 14. Margt góðra muna.
Kvennadeildin
17.08.2011 11:26
Bragaþing
Landsmót hagyrðinga verður haldið í salarkynnum Hótels Stykkishólms
3. September nk.
Miðasala hefst kl. 19:00, borðhaldið kl. 20:00. Veislustjóri verður hinn góðkunni Gísli Einarsson.
Matseðillinn er sérlega spennandi:
Forréttur: Steiktur saltfiskur á couscous með tómatdöðlusósu.
Aðalréttur: Steikt lambafille með ofnbökuðu rótargrænmeti,
fondant kartöflum og portvínssósu.
Eftirréttur: Frönsk súkkulaðiterta með þeyttum rjóma.
Veslustjóri verður Gísli Einarsson
Dagskráin verður fjölbreytt og vönduð og margt til gamans gert svo sem:
Ragnar Ingi Aðalsteinsson, heiðursgestur mótsins flytur ávarp.
Systurnar Halla Ósk og Sigríður Embla Heiðmarsdætur syngja tvísöng.
Njáll Sigurðsson, Sigurður Sigurðarson,Steindór Andersen og etv. fleiri kveða brot úr rímum og ljóðabréfum.
Veislugestir flytja vísur sínar. yrkisefni mótsins sem að þessu sinni eru: SKALLI og LAUN.
Hraðyrkingakeppni Bragaþings undir stjórn Sigurðar Sigurðarsonar
Pallborðsyrkingar. Úrvalshagyrðingar úr öllum landshlutum skiptast á skoðunum um ýmis viðfangsefni. Stjórnandi Dofri Hermannsson
Boðöxin afhent talsmanni Norðlendinga.
Milli atriða stjórnar Ingi Heiðmar Jónsson fjöldasöng.
Laust fyrir miðnætti lýkur formlegri dagskrá en síðan leikur Aðalsteinn Ísfjörð fyrir dansi fram eftir nóttu.
Miðaverð er kr. 6.900
Tekin hafa verið frá 24 tveggja manna hótelherbergi fyrir mótsgesti
Gisting eina nótt í tveggja manna herbergi með morgunmat kostar kr. 6.000 á mann en í eins manns herbergi kr. 9.000.
Aukanótt kostar kr. 4.500
Mótsgestir skrái sig sem fyrst hjá Hermanni Jóhannessyni í netfanginu hremmi@gmail.com eða í síma 866 9000/434 7765
eða Sigrúnu Haraldsdóttur í netfanginu sigrunhar@simnet.is eða í síma 824 5311.
Þeir sem vilja hótelgistingu panti hana í netfanginu hotelstykkisholmur@hringhotels.is eða í síma 430 2100
29.07.2011 12:27
Sumarferð Barðstrendingafélagsins
Nú styttist í okkar árlegu sumarferð en hún verður farin laugardaginn 13. ágúst 2011.
Farið verður til Vestmannaeyja að þessu sinni og kostar ferðin aðeins kr. 4000 svo það er um að gera að nýta tækifærið og skella sér með. Farið verður með rútu til Landeyjahafnar og þaðan siglt til Vestmannaeyja. Keyrt verður um eyjuna undir leiðsögn Kristínar Haraldsdóttur.
Brottför fá BSÍ er stundvíslega kl. 07:30
Reikna má með heimkomu milli kl. 20 og 21 um kvöldið.
Tilkynna skal þátttöku fyrir kl. 21:00 fimmtudaginn 11. ágúst til Erlu Gísladóttur s. 6929137 eða Gunnlaugs Olsen s. 8219491
Munið að hafa með nesti fyrir daginn og góða skapið að sjálfsögðu eins og alltaf :)
03.05.2011 14:32
Kvennadeild Barðstrendingafélagsins - vorkaffi
Hinn árlegi vorfagnaður kvennadeildar Barðstrendingafélagsins var haldinn í Breiðfirðingabúð laugardaginn 31. apríl. Á þennan vorfagnað bjóða kvennadeildarkonur öllum 65 ára og eldri úr Barðastrandarsýslum ásamt mökum og aðstoðarfólki. Rúmlega 100 manns mættu í kaffið að þessu sinni.
Á meðfylgjandi myndum má sjá hið veglega kaffihlaðborð og tala myndirnar sínu máli.
Vonandi hafa allir notið samverunnar.

27.04.2011 13:43
Aðalfundur í kvöld
Munið aðalfundinn í kvöld, miðvikudaginn 27. apríl, í Konnakoti kl. 20:00
Sjáumst
Kveðja
Stjórnin
14.03.2011 17:25
Hagyrðingakvöld 23. mars
Kæru barðstrendingar,Nú styttist óðum í hagyrðingakvöldið okkar.
Staður: Konnakot, Hverfisgata 105, 2. hæð
Tími: Miðvikudagur 23. mars kl. 20:00
Kaffi og meðlæti í hléi
Frítt inn.
Bestu kveðjur
Nefndin
22.02.2011 14:54
Sagnakvöld í Konnakoti
Á morgun miðvikudag verður okkar mánaðarlega "Opna hús". Í þetta sinn verðum við með Sagnakvöld en það koma til okkar nokkrar sagnaþulur og segja okkur sögur og kveða rímur.
Ég var á svona kvöldi hjá þeim í haust og skemmti mér svo rosalega vel að ég var æst í að fá þær til okkar. Sem betur fer gátu þær orðið við því og hvet ég ykkur til að koma og sjá hvað þær hafa fram að færa, þetta er frábær skemmtun.
Hlakka til að sjá ykkur.
Miðvikudagurinn 23. febrúar kl. 20:00
Konnakoti
Hverfisgötu 105, 2. hæð
